Tilskipun 2014/65/ESB um markaði fyrir fjámálagerninga og breytingu á tilskipun 2002/92/EB (MiFID2)

(1712095)
Efnahags- og viðskiptanefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
20.12.2017 3. fundur efnahags- og viðskiptanefndar Tilskipun 2014/65/ESB um markaði fyrir fjámálagerninga og breytingu á tilskipun 2002/92/EB (MiFID2)
Nefndin afgreiddi álit um málið til utanríkismálanefndar með samþykki Bryndísar Haraldsdóttur, Brynjars Níelsson, Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur, Oddnýjar G. Harðardóttur, Óla Björns Kárasonar, Silju Daggar Gunnarsdóttur og Þorsteins Víglundssonar. Að álitinu stóðu sömu nefndarmenn.
20.12.2017 1. fundur utanríkismálanefndar Tilskipun 2014/65/ESB um markaði fyrir fjámálagerninga og breytingu á tilskipun 2002/92/EB (MiFID2)
Fjallað var sameiginlega um dagskrárliði 6 og 7.

Formaður kynnti álit efnahags- og viðskiptanefndar eftir efnislega umfjöllun samkvæmt 2. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála. Nefndin lauk umfjöllun sinni um málið og verður utanríkisráðuneyti upplýst þar um.
19.12.2017 2. fundur efnahags- og viðskiptanefndar Tilskipun 2014/65/ESB um markaði fyrir fjámálagerninga og breytingu á tilskipun 2002/92/EB (MiFID2)
Liðnum var frestað.
18.12.2017 1. fundur efnahags- og viðskiptanefndar Tilskipun 2014/65/ESB um markaði fyrir fjámálagerninga og breytingu á tilskipun 2002/92 (MiFID2)
Á fund nefndarinnar komu Erna Hjaltested og Guðmundur Kári Kárason frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og Álfrún Perla Baldursdóttir og Finnur Þór Birgisson frá utanríkisráðuneyti. Gestirnir kynntu gerðina og svöruðu spurningum nefndarmanna.